Hæfniþrep: 3
Sjúkraliðanám picture

Nám á sjúkraliðabraut er starfstengt og á framhaldsskólastigi. Meginmarkmið þess er að veita þekkingu og færni til að veita ákveðna hjúkrunarþjónustu. Í því felst meðal annars að meta ástand skjólstæðinga og geta leiðbeint þeim og aðstandendum þeirra.

Sjúkraliðanám veitir lögvernduð starfsréttindi. Meðalnámstími er þrjú ár að meðtalinni 16 vikna starfsþjálfun.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Undantekningar geta þó verið og best að skoða slíkt nánar á heimasíðum skólanna.

Í boði er einnig nám á sjúkraliðabrú en hún er til að auðvelda ófaglærðu fólki með starfsreynslu að öðlast starfsréttindi. Skilyrði eru að umsækjandi hafi náð 23 ára aldri og hafi að minnsta kosti 5 ára starfsreynslu, sé í starfi og hafi lokið starfstengdum námskeiðum.

Athugaðu hvort námið sé lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám á sjúkraliðabraut skiptist í almennar greinar, sérgreinar sjúkraliðabrautar, verknám og starfsþjálfun.

Sjúkraliðabrú er ætluð til styttingar á sjúkraliðabraut og er eingöngu farið í sérgreinar, vinnustaðanám og starfsþjálfun. Athugaðu að námið eða hluti þess gæti verið kennt í fjarnámi.

Kennsla

Sjúkraliðabraut hefur verið kennd í Fjölbrautaskólanum við ÁrmúlaFjölbrautaskólanum í Breiðholti, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla SuðurnesjaFjölbrautaskóla Vesturlands, Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum, Menntaskólanum á Ísafirði, Verkmenntaskóla Austurlands og Verkmenntaskólanum á Akureyri. Sjúkraliðabrú getur verið í boði við skólana þar sem sjúkraliðanám er kennt sem og hjá fræðslu- og símenntunarstöðvum.

Þá er fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða í boði við Háskólann á Akureyri, sveigjanlegt nám samhliða starfi.

Að loknu námi

Námið veitir réttindi til að starfa sem sjúkraliði. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika