Danskennarar sinna danskennslu í dansskólum, listdansskólum, jassballettskólum, líkamsræktarstöðvum eða á námskeiðum. Starfið felst að miklu leyti í að kenna og æfa einstök spor og hreyfingar og tengja þau saman í dans.
Samkvæmisdanskennarar sérhæfa sig oft í dönsum á borð við suðurameríska dansa, þjóðdansa eða þá sem eru í tísku hverju sinni. Listdanskennarar kenna sígildan listdans og nútímalistdans en jassballettkennarar byggja kennsluna á listdansi í bland við aðrar danstegundir þar sem áhersla er lögð á frjálsan spuna.

Helstu verkefni

- gerð kennsluáætlana og að ákveða kennsluaðferðir
- leiðrétta líkamsstöðu og tækni nemenda
- leiðbeina við túlkun í dansi
- dansa með sýnikennslu
- semja eða setja saman dansa fyrir nemendasýningar
- æfa nemendur fyrir merkja- eða stigapróf og keppni
- dæma í danskeppnum og prófum
- þjálfa atvinnudansara og undirbúa þá fyrir sýningar eða keppni

Hæfnikröfur

Í starfi danskennara eru danshæfileikar nauðsynleg undirstaða auk áhuga á tónlist og því að hvetja aðra til að þróa áfram sína færni á þessum sviðum. Þolinmæði og góð félags- og samskiptafærni eru miklir kostir ásamt því að geta stjórnað nemendahópum og hvatt þá og einstaklinga áfram.
Danskennarasamband Íslands á FB

Námið

Listdanskennsla getur verið allt að 5 ára háskólanám. Margir hafa t.d. lokið námi af listdansbraut í framhaldsskóla, BA gráðu frá LHÍ eða erlendum listdansskóla að viðbættu tveggja ára kennsluréttindanámi hér heima eða erlendis.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika