Gönguleiðsögumenn fara með ferðafólk í lengri eða styttri gönguferðir og fjalla um það sem fyrir augu ber; náttúru,  lífríki og samfélag.

Helstu verkefni

skipuleggja eða útfæra gönguferðir um landið við sumar og vetraraðstæður
taka á móti ferðafólki fyrir hönd ferðaskrifstofu eða skipuleggjanda
aðstoða og miðla upplýsingum um klæðnað, búnað, næringu, veðurútlit o.þ.h.
fylgjast með upplýsingum um veður og færð
tryggja öryggi ferðafólks og bregðast við óvæntum aðstæðum

Hæfnikröfur

Gönguleiðsögumenn þurfa að kunna að lesa í landið, finna hentugar leiðir og tjaldstæði með tilliti til umhverfisþátta. Þekkja eðli straumvatna og geta valið vöð. Mikilvægt er að búa yfir færni í rötun, kunna að lesa kort, nota áttavita og staðsetningu með GPS tækjum. Einnig þarf að hafa vald á skyndihjálp og  mikla reynslu af útivist, ferðalögum, útilegum og gönguferðum um óbyggðir, jafnt að sumri sem vetri. Til að starfa sem gönguleiðsögumaður er nauðsynlegt að vera í góðu líkamlegu formi.
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

Námið

Nám fyrir verðandi leiðsögumenn er við Menntaskólann í Kópavogi auk þess sem slíkt nám hefur verið í boði við Endurmenntun Háskóla Íslands og Símenntun Háskólans á Akureyri.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika